Laddis Fagri!

Laddis lífsglaði!

06.12.2007 12:11:06 / Laddis

Próf. Jólafrí soon!

Yeah! Núna eru prófin byrjuð og er ég búinn að fara í 2 próf og eru 3 eftir = 5 próf allt í allt! Ég er búinn að vera alltof latur við það að læra í vetur og núna fyrir prófin. Kannski maður gluggi í einhverja bók fyrir íslensku prófið sem er á morgun? Hver veit..

Anyway..Ég hef bara ekki haft neitt að gera undanfarið bara vinna um helgar og reyndar í fyrradag líka og svo í dag! :D

 

Ég hef bara haft það mjög gott undanfarið og alveg í skýjunum af ást! ;* <3

 

Ég hef haldið mest uppá James Blunt undanfarið! Hann klikkar aldrei! ;)

Ég er búinn að update'a smá myspace'ið mitt undanfarna daga, take a look at it! ;D

http://www.myspace.com/laddis_laddis 

 

En ég held að það sé ekkert meira þessa stundina! :)

 

Bara hafið það sem allra best og Inga mín, láttu þér batna! ÉG ELSKA ÞIG! ;* <3 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 18:49:11 / Laddis

Blogg! o.O

Góðan dag kæra fólk og gleður mig að það sé ennþá fólk að skoða þessa niðurrifnu síðu mína. Ég er ekki alveg að standa mig eins og ég lofaði ykkur í byrjun og ætla nú að REYNA að komast á smá skrið aftur þótt það eigi eftir að reynast mér erfið þolraun, því ég er svo alltof latur þennan mánuðinn og nenni nákvæmlega engu nema tala við Ingu, keyra og vera í tölvuni að gera einhvað annað en að blogga. -.-

En að málum málana, starfsmannasjóðinum! *Joke*

*Salurinn hlær*

 

Erhmm..Já! Mikið gerst að undanförnu.

T.d. fór ég til Rvk til Ingu um daginn eins og ég minnsti á í bloggi hér áður og var það besta helgi lífs míns! Og svo kom hún til mín 31.okt-5.Nóv og var það líka besta helgi lífs míns! Og svo er ég að fara til hennar 23-25.Nóv og það verður þriðja besta helgi lífs míns! :D Hvað ætli ég eignist margar "Bestu helgar lífs míns?" Jú, allar þær helgar og alla þá daga sem ég mun vera með henni. Hverja mínútu, hverja sekúndu. Hvert augnarblik!

Ég elska þig Inga meira en nokkurt annað sem fyrir finnst í þessum víðáttumikla heimi.

 

Bless í bili og góðar stundir! ;* 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.10.2007 14:34:25 / Laddis

Allt að gerast!! :D

Já, góðan daginn kæru vinir!

Ég var í RVK seinustu helgi sem var btw, BESTA HELGI EVER! Shit! Þetta var svo gaman og bara vááá æði! INGA ÉG ELSKA ÞIG OG TAKK TAKK TAKK! ;*

Og svo kemur hún til mín eftir 4 daga!! :D eða réttara sagt Miðvikudaginn 31.oktober klukkan 17:10! Nákvæmlega!  Og þá verður sko gaman! Aaaaaaa! Ég hlakka svo til!! :D

Ég var að fá bílpróf og er svona að skoða einn bíl og er búinn að prufukeyra hann og svona og mun LÍKLEGA festa kaup á hann á mánudaginn eða þriðjudaginn. :D

Þetta er lítill sætur VW Polo '99 Beinskiptur 5 gíra, 1400cc og framhjóladrifin með nýja tímareim og fylgja sumar og vetrardekk með! :D 

 

Ég nenni ekki að koma með neina details um helgina! Bara hún var æði og næsta vika mun verða engu síðri! :D :D

HÉR ER MYNDBAND AF MÉR AÐ BORÐA FYRSTA SUBWAYINN MINN OG FLEIRI MYNDIR AF KUNDUNNI! :D

 

Takk fyrir mig og góðar stundir! LOVE YOU! ;* <3 


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 16:52:00 / Laddis

Náði Bóklega!!! :D

Hææ! :D Ég náði fucking bóklega bílprófinu!!! :D:D Me so happy now! :D

Allir að óska mér til hamingju!!! :D:D:D:D:D

 

En að alvöru málsins.

 

Ég fer til Rvk eftir 9 daga til ástarinnar minnar hennar Ingu! ;* <3

Og fæ svo ökuleyfið eftir 12 daga! :D 

 

Ég er svo ánægður með lífið í augnarblikinu að ég gæti knúsað það! :D Ef það væri snertanlegt! :O

 

Hljómsveit dagsins, James Blunt! Já! Maður verður aldrei þreyttur af þessum Guðdómlega söngvara og nýjasti diskurinn hans, All the lost souls, er bara meistaraverk út í gegn! 

Ég hef hlustað á þennan og gamla diskinn hans út og suður og þetta er bara besta sem hægt er að hlusta á og sérstaklega til slökunar og líka bara að hlusta á þessa Guðdómlegu ástarsöngva. 

Inga you're a star! ;* <3

 

Takk fyrir mig og njótið lífsins og gangið hægt um gleðinar dyr!

Verið ávalt bjartsýn og jákvæð og þá mun allt fara á betri veg!

 

-Laddis;* 


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.10.2007 18:32:13 / Laddis

1.oktober og allt að gerast!

Já, gott fólk! Langt síðan ég hef skrifað færslu inná þessa ágætu síðu.

Ég byðst velvirðingar á þessum seinagangi í mér og ótillitssemi! *Peace* ;*

 

Um daginn þá var yfirmaðurinn minn hjá Vífilfell (coke) svo góður og gaf mér heila kippu af Powerade Orange! :O OMG!! Svooo gott! :D

 

Í dag er 1.okt. 3 vikur þar til ég fæ bílpróf. 2 vikur og 4 dagar þar til ég fer til Rvk. 2 vikur og 4 dagar eru 18 dagar. 18 dagar í Ingu ;* <3 ^^

 

Hljómsveit dagsins, finally? :';)

En band dagsins er 'Band of Horses' sem var stofnað Seattle í Bandaríkjunum árið 2004 af þeim Creighton Barrett, Ben Bridwell, Rob Hampton, Ryan Monroe, Robin Peringer og Bill Reynolds! 'Band of horses' er indie rock band og hafa gefið út tvo diska. Sá fyrri 21.mars 2006 'Everything All the Time' og svo mun  'Cease to Begin' koma út 9.oktober næstkomandi! (En ég náði í þetta gull á netinu svo ég er góður) ;)

Band of horses 

Guttarnir í Band of horses! ;D

 

 

Ég þakka þá bara fyrir mig og góðar stundir!

 

-Laddis;* 


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.09.2007 19:42:31 / Laddis

Awesome Stærðfræði tími í dag! :'D

Já, í dag 5.Sept 2007 fór ég í skemmtilegasta stærðfræði tíma lífsmíns! Þetta var svooo fyndið, fyrirgefið en maður gat ekki annað en hlegið! (Þú hefðir gert hið sama).

Okey, ég sat við gluggan ásamt 3 öðrum í þessari röð og þetta var bara besta show sem ég hef farið á..Úff!

Það er einn einhverfur drengur í skólanum og hann er já, eins og allir einhverfir, einfari!               Og labbaði hann þarna um einn upp og niður brekkuna og upp stigan og út og inn og fram og til baka og í hringi í um klukkutíma! Og af og til þegar  hann var að labba þá fór hann að spila á loftpíanó og dansa :'D Váá, þetta var krúttlegt! Og svo var hann eitthvað að dunda þarna og tók svo uppá því að sleikja á sér puttan og þrýfa skóna og alltaf sama puttan! Owww!

En svo leið ekki að löngu að kennarar fóru út í reykingarpásu og kennarinn hans líka og kennarinn kallaði eitthvað til hans og þá var  hann svo töff , einhverfistrákurinn, og heilsaði svona á móti bara mest cool vera jarðar sko. Og svo var  hann eitthvað að labba þarna um og tvær stelpur í svona 7.bekk í Grunnskóla löbbuðu þarna niður og framhjá honum og þegar þær voru komnar framhjá þá leit hann svona við og starði á eftir þeim (úúú, rass) hahaha :'D PeRvErT! :'D

Og svo leið ekki að löngu að hann fór inn og úr skónum og kom aftur út á sokkalistanum og var þarna bara labbandi fram og til baka og svo er horn þarna á húsinu sem fólk fer alltaf til að reykja og hann kíkti svona fyrst og neibb, einginn! Öllu óhætt og fór bakvið! ;D

Ahh, forvitnilegur drengur þarna á ferðinni og ekkert grín að vera svona og það er ljótt að hlægja að svona fólki, nema í laumi! :Æ Sweet young boy! :)

 

Fyrirgefið ef þið takið þetta nærri ykkur, en þetta var bara svo yndislegt! :)

 

-Laddis;* 


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.08.2007 15:27:29 / Laddis

30.000! School has begin!

Good day/Good Evening! HelloGoodbye! ;D

Hvað segja bændur þá? *Jæja, best að fara að mjólka*

Anyway! Ég fór með StebbE uppí fjall fyrir eitthverju síðan um miðnætti að taka myndir af bænum Ísafirði! Sem er by the way my Hometown! Sweet home Ísafjörður! ;D

Jamm, pretty fun that stuff!

 

Ég hef bara verið að vinna, vinna, vinna OG VINNA! :D Ekkert smá gaman :D En í gær var seinasti dagurinn minn í vinnnu 1 eins og ég kýs að kalla hana en það var Rafvirkja vinnan! ;) En þá fór ég með kökur og eitthvað niðrí vinnu til að þakka fyrir mig! (Annars hefði ég verið drepinn ef ég hefði ekki gert það). Og svo er það vinna 2 sem er að raða

Coke2l-1l-0,5l, diet coke2l-0,5l, coke zero2l-0,5l, coke light2l-1l-0,5l, Coke í dós, Coke Light í dós, fanta2l-0,5l, sprite2l-1l-0,5l, sprite zero2l-1l-0,5l, Schweppes2l-0,5l, magic, Burn, Thule, T2Peru2l-0,5l, T2Sítrónu2l-0,5l, Toppur Lime1,5l-0,5l, Toppur sítrónu1,5l-0,5l, Toppur blár1,5l-0,5l, Toppur hvítur1,5l-0,5l, Vatn, Svali Epla, Svali Appelsínu, Svali Sykurskertur Epla, Svali Sykurskertur Appelsínu, Svali Jarðarberja, Svali Sólberja, Svali Sumar, Svali Sítrónu, Svali Jarðarberja og Sítrónu, Trópí Appelsínu, Trópí Epla, Trópí Kalkbættur, Trópí Tríó, Brazzi appelsínu, Brazzi Morgunsafi, Brazzi Epla, Brazzi Ananas!

 

Held að þetta sé komið!

 

Skólinn byrjaður og læti bara ! Allt að gerast :D

 

Og fuck! Kæra fólk! 30.000 heimsóknir! GERI AÐRIR BETUR! Ég byrjaði með þessa síðu í febrúar! Og það er ÁGÚST! 30.000 heimsóknir á hálfu ári! Það er svo fkn awesome! Þegar ég byrjaði þá var ég búinn að áætla 1000 heimsóknir á mánuði og þá bara um 6000 á þessum tíma! En, nei! við erum að rústa þessu upp hérna og gerið það fyrir mig og ykkur og bara móralinn að koma hingað sem oftast og skoða og ég ætla að reyna að byrja að gera eitthvað töff fyrir þessa síðu og blogga meira og gera flottari og lengri blogg um mikilvæg málefni og ekki gera þetta svona dautt! Here we go again, syngur James Blunt! ;D

 

Laddis kveður að sinni! Good luck at school n' have fun in life! ;* 


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 19:34:19 / Laddis

20.000! Woot!? :O

Já, kæru lesENDUR! Hahhahaa..or something like that..Anyway. Þá erum við loksins komin yfir 20.000 heimsókna múrinn og gott betur en það! :D Til hamingju ég og þið lesENDUR! hahaha! eða þannig.

 

Ég man ekki hvort ég hafi sagt það í seinasta bloggi, en þá kemur það hérna:P

Ég er í tveim vinnum, Rafvirki og raða gosi og svala í hillurnar í Bónus fyrir Vífilfell! Já, ég vinn ekki fyrir Bónus og það mun ég aldrei gera! :P

Anyway, þá er nóg að gera í vinnuni og svona og bara gaman, gaman:D Skólinn byrjar eftir 22 daga og ég er bara í goodie feelings, 3 mánuðir í bílprófið og allt að gerast!

 

Lag dagsins : Worried about Ray - The Hoosiers! Frábært lag í alla staði og bara mjög skemmtilegt til hlustunar, TEXTI!

 

The Hoosiers er rokkband frá London og var stofnað árið 2007 er ég held og hafa gefið út einn Single sem heitir "Worried about Ray" og hafa þeir slegið í gegn með því og komst það í #5 sæti á breska vinsældarlistanum! 

Meðlimir hljómsveitarinnar eru 3 talsins og heita þeir, Irwin Sparkes (Söngur, Gítar), Martin Skarendahl (Bassi) og Alfonso Sharlando (Trommur).

 

Ég veit ekki meira um þessa ágætu hljómsveit en vonandi fáum við að heyra meira frá þeim seinna en las ég eitthverstaðar að þeir myndu gefa út disk í kringum 10.September 2007!

 

Laddis kveður að sinni, góðar stundir! 


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.07.2007 18:53:13 / Laddis

Heima er bezt! :D

Hello dear fellows! :D

 

Ég er þá loksins kominn heim eftir 10 daga frí :D

 

Fyrst fór ég í sumarbústað í Ölfusborgum sem er 2km frá Hverargerði og 10km frá Selfossi!

Það var heitur pottur, 3 svefnherbergi og baðherbergi með bestu sturtu sem ég hef farið í! Omg langaði að taka hana með mér heim :D Eini gallinn við þetta sumarhús var að það voru eingir gluggar í húsinu, bara í svefnherbergjunum og stórir gluggar í stofuni/eldhúsinu og sólstofuni, þannig það var alltaf svæla þar inni og varla hægt að anda:'D

Ég fór í fótbolta á eiginlega hverju kvöldu á meðan dvöl minni stóð þarna og það bara helvíti fínt.

Mikið af Ísfirðingum þarna svo maður vissi alveg hverjir þetta voru en samt líka nokkrir ókunnugir frá öðrum landshlutum. 

Við gerðum margt og mikið og lítið og skrítið. Fórum til dæmis í Draugasetrið á Stokkseyri og ég var að fara í annað sinn, fór fyrst í 10.bekkjarferðinni minni á sínum tíma..(Vor 2006).                Þetta var bara helvíti fínt, en fyrst fór ég og yngri systur mínar inn og mamma og pabbi 1 mín á eftir okkur en mamma steig skref inn og rauk svo út, fannst creepy þetta mjúka gólf þarna :'D

Þá var það bara ég og systur mínar tvær og pabbi rétt á eftir okkur. Og þær öskruðu og öskruðu og öskruðu og sú yngri brast í grát og í fangið á pabba..Og á tímabyli þá var sú 14 ára komin í fangið á mér :'D Já, svona er þetta..Some people are born chickens:'D

 

En við kíktum svo í tvo dýragarða þarna á svæðinu, dýragarðinn á Stokkseyri, frekar lame dýragarður en samt á svona byrjendastigi held ég og bara dýr sem maður hefur séð áður:/

En dýragarðurinn Slakki var aðeins flottari og eldri og flott hönnun í honum, en konan sem hannaði allt í honum lést árið 2002.

Þar var líka hægt að fara í Mini gólf og billjard og fá sér gott að borða. :D

 

Ermm..Svo þegar að viku dvöl okkar endaði þarna í sumarbústaðnum þá fórum við í Stykkilshólm til frændfólks okkar, hálfbróðir pabba býr þar með konunni sinni og 2 sonum.

Sá elsti er fluttur út með konu og tveim sonum líka. :'D

Eeeeeennn það var nú ekkert svo skemmtilegt samt..Frekar lítið að gera og svona. Jamm! :)

 

Ég keypti mér ný föt á Selfossi! OMG ÞAU ERU GEÐVEIKT FLOTT! (Not gay, not gelgzz, only the truth). 8)

 

Ég nenni ekki að skrifa meira í byli! Just stay on the bright side! :D

 

Mika ROCKS!!!

 

-Laddis hjartaknúsari ;* 


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.07.2007 22:47:05 / Laddis

Til hamingju við!

Til hamingju við! Við höfum loksins náð 10.000 manna múrnum og gott betur og erum komin langt yfir 11.000 manna múrinn líka! Kínamúrinn næstur? :'D

Ég fékk skemmtilegt sms eitt kvöldið um að síðan mín hafi verið í 2.sæti yfir mest heimsóttu síðunar einn daginn! ;) En í dag er ég bara í 17.sæti! Sem þýðir að við þurfum að bæta okkur og skoða meira og ég þarf að koma með eitthvað töff dót á síðuna og activari blogg!

Ég ætla aðeins að fjalla um leti. Ég hef mína skoðun á hvað leti er og ég fór í smá Dr.Laddis hugleiðingu í vikunni og komst að nokkuð raunhæfri niðurstöðu er ég held.

Sko, leti er ekki eitthvað sem þú fæðist með. Leti getur líka verið foreldrunum að kenna.

Jú, sjáið nú til. Þú fæðist. Foreldrar þínir ala þig upp og þau gleyma einu mikilvægu í uppeldinu, þau gleyma að láta þig gera allt sjálfur. Þau gera of mikið fyrir þig og láta þig komast upp um margt sem þú getur alveg eins gert sjálfur, svo sem laga hjólið þitt. Og þá læriru til verka og ertu því mun activari þegar á eldri árin er komið. 

Leti er ekki bara leti. Ég tel leti bara vera eitthvað sem þú gerir þér upp. Jú, sjáið til.

Dæmi: Mamma: "Jón viltu ekki taka úr þvottavélini fyrir mig?".. Jón: "Nei, ég nenni því ekki."

Og þá tekur mamman úr henni sjálf og því kemst hann upp með þetta. En ef hún segir "Jón taktu úr þvottavélinni fyrir mig." "Nei, ég nenni því ekki!" , "Jú, þú átt að gera það!" "Jæja, okey" 

Mamma 1-0 Jón! 

En hinsvegar geturu verið latur líka af því að þú ert þreyttur. Segum sem svo að þú kemur heim eftir erfiðan vinnudag og mamma byður þig um að taka uppúr uppþvottavélinni. 

En þú kemur með þá afsökun að þú sért svo þreyttur. En í sjálfum sér þá áttu alveg yfirþyrmandi nóg af orku eftir. Þetta er nú ekki erfitt verk og tekur þig max 3 mín!

Leti er orkuleysi og því legg ég til að þið sem eruð löt að þið farið snemma að sofa og ekki reyna of mikið á ykkur yfir daginn, ekki meira en til þarf. Og þá hafið þið næga orku er þið komið heim og daginn eftir hafið þið helmiki meiri orku en daginn áður og endar með því að þið verðið orkuboltar heimilisins og getið því afkastað meiru í næstu viku í vinnuni!

 

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í dag, ég bæti því þá bara við ef ég næ að hugsa eitthvað meira! :)

 

Góðar stundir!

 

-Dr.Laddis! ;* 


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.07.2007 21:42:00 / Laddis

I'm back!

Já kæra fólk! Ég er kominn aftur! Tölvan mín hefur verið í viðgerð í um tvær vikur og fékk ég hana aftur í gær og hef verið að setja upp allt í tölvuna þar sem hún var formöttuð. Ég er með 1.67Ghz og 992MB of RAM (Vinnsluminni). Og er með 372,5GB stóran Harðan disk (Hard driver) og er skiptur í þrennt. 39GB, 74,5GB og 259GB! :D I'm sooo Happy now! :D

 

Ég fór á ljósmyndarnámskeið um helgina og það var mjög fræðandi.

Lærðum um Ljósop og hraða, brennivídd og fleira skemmtilegt. Hvernig á að taka myndir og lærðum alveg á myndavélina okkar og bara allt! :D Og svo fórum ég og Stebbi að taka myndir af fossum og sólsetrinu og svona gaman gaman! :D

 

Ég hef bara verið að vinna á fullu og bara skemmtilegt það og ég var að koma með fyrsta slúðrið mitt á hugi.is/sorp og mjög skemmtilegt það.

 

 

Laddis kveður að sinni! Bæjó! ;* 


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.06.2007 23:54:59 / Laddis

17.Júní færsla!

Já, ofur hunangsbangsinn Stebbi grínisti vildi endilega að ég myndi koma með eitt ofur sveitt 17.júní blogg og hér er það kæru hálsar! Það eru 13 min eftir af 17.júní er ég skrifa þessi töluðu orð og því verð ég að skrifa hratt og reyna að gera eins fáar villur og ég get og skrifa þetta vel þótt það eigi eftir að misheppnast smá. Og ekki meira af blaðri.

 

En ég, Laddis er að fara að byrja með smá nýjung inná www.hugi.is/sorp en ég verð slúðurmaðurinn þar á bæ og munu allir sorparar koma þar við sögu og mun ég ekki sýna neina miskun! ENGA! heyr, heyr.. 

 

Líf mitt hefur verið hreynt yndislegt að undanförnu, like always. Og hef ég verið að vinna á fullu og svo bara chilla um helgina og svo aftur vinna á morgun og alveg að koma helgi..Næsta helgi..Ohh..langar í næstu helgi. Frí? Yeah :D

 

Ég elska alla þá sem ekki hata. Því að hata er það sem allir ættu að forðast.

Hatur boðar ekkert gott, en getur boðað vont. Ekki hata. Elskið!

Eins og máltakið segir, Elskiði friðinn og strjúkiði kviðinn. 

 

 

17.Júní lagið!

 

Blómin springa út og þau svelgja í sig sól, sumarið í hámarki og hálft ár enn í jól.

Í hjarta sínu fólkið gleðst og syngur lítið lag því lýðveldið Ísland á afmæli í dag.

                    

Hæ, hó og jibbí jeij og jibbí jeij, það er kominn 17.Júní

Hæ, hó og jibbí jeij og jibbí jeij, það er kominn 17.Júní

 

Jóni heitnum Sigurðsyni færir forsetinn firnar mikinn árvissan og stóran blómsveigin. Fjallkonan í múnderingu prílar uppá pall. Pennt hún les upp ljóð, eftir löngu dauðan kall.

 

Hæ, hó og jibbí jeij og jibbí jeij, það er kominn 17.Júní

Hæ, hó og jibbí jeij og jibbí jeij, það er kominn 17.Júní

 

Skrúðgöngurnar þramma undir lúðrasveitarleik, lítil börn með blöðru að lyfta sér á kreik. Síðan lýður dagurinn við hátíðannahöld. Heitar étnar pylsunnar við fjölmörg sölutjöld.

Um kvöldið eru allstaðar útidansleikir og ævinlega spila þarna góðar hljómsveitir en rigning bindir enda á þetta gleðigeim er gáttir opnast himins og allir fara heim.

 

Hæ, hó og jibbí jeij og jibbí jeij, það er kominn 17.Júní

Hæ, hó og jibbí jeij og jibbí jeij, það er kominn 17.Júní

Hæ, hó og jibbí jeij og jibbí jeij, það er kominn 17.Júní

Hæ, hó og jibbí jeij og jibbí jeij, það er kominn 17.Júní

Hæ, hó og jibbí jeij og jibbí jeij, það er kominn 17.Júní

Hæ, hó og jibbí jeij og jibbí jeij, það er kominn 17.Júní

 

 

 ©Laddis



Njótið þess að vera til, því þið fáið aðeins eitt tækifæri til þess að lifa.

 

-Laddis;* LOVE YOU ALL! ;* 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.06.2007 18:20:00 / Laddis

Góðan og blessaðan daginn! :D

Long time no blogg..Já:O Heil vika eða eitthvað síðan ég bloggaði síðan og margt skemmtilegt og skondið gerst síðan þá og ætla ég að reyna að troða nokkrum molum í þetta blogg um það helsta sem hefur gerst í lífi mínu undanfarna viku! :)

 

Á föstudaginn þá var ég í vinnunni og var sendur útí búð að kaupa 4 bolta (Ekki bolta til að sparka í, heludur svona skrúfubolta). Og svo í bakaleiðinni var ég bara að hjóla og leit svona niður í 1-3 sec. og er ég leit aftur upp þá BOOM var þessi fluttningarbíll þvert á götunni og palllyftan stóð út og ég beint á hana með magan og flaug af hjólinu og fékk risa sár á mallakútinn. En ég þurfti ekki að segja mér það tvisvar að rjúka aftur af stað þar sem ég vildi ekki að eitthver færi að gera sér ferð til mín eða hlægja eða hvað sem fólki dettur í hug.

Þið hugsuðu kannski, "Ætli það sé ekki allt í lagi með Laddis okkar?" Jú, ég er alveg í fínasta lagi og sárið er næstum farið. Takk fyrir hugulsemina! ;*

 

Á sunnudagskvöldið  um klukkan hálf ellefu eða  svo, þá ákvað ég að hringja í hana Hrafnhildi mína og viti menn, við töluðum saman í um 3klukkutíma. :O Ég kláraði mína og langt var komið á hennar. En það var mikið hlegið og talað um allt á milli himins og jarðar! ;* 

I promise to call you soon again honey;*

 

Þetta var svona brot af því besta sem gerðist í lífi mínu um þessa viku og var seinasta vinnu vika frekar tilþrifalítil og frekar lítið að  gera í vinnunni! :/ En vonandi skánar þetta bráðulega.

 

Nenni ekki að setja inn eitthvað lag dagsins eða eitthvað þannig rugl þar sem mér finnst þetta blogg alveg mátulega langt! Og munið kæra fólk, FM957 is the shit ! Good shit.. :P

 

Hafið það náðugt elskunar mínar og njótið þess að lifa því þið fáið aðeins eitt tækifæri! :D

 

-Laddis;* 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.05.2007 21:00:52 / Laddis

Lítið að gera at work? :O

Hello, hello ladys and gentleman! New day and new opportunity!

 

Þessi vika hefur verið MJÖG róleg..Löng helgi og svona. Og í gær var EKKERT að gera í vinnunni..Skortur á verkefnum og svona. Og dagurinn í dag var enn rólegri en samt smá fjör og segi ég frá því..bíddu...NÚNA!

Já, í dag fór ég og vinnufélagi minn á Vespunni sem fyrirtækið á, niður í Ísblikk að ná í 3 stálplötur og það var geðveikt sko! Þessi Vespa kemst á 30 km hraða MAX og vorum alveg á seinasta bensíndropanum. Hann keyrði og ég sat fyrir aftan :'D Þetta var smá kjánalegt en samt fyndið like hell :'D

En lag og tónlistar maður dagsins er án nokkurs vafa hinn eini sanni Enrique Iglesias og lagið hans sem er þessa daganna spilað MIKIÐ á FM957, Do you know (The ping pong song)

LINKUR Á LAGIÐ

LINKUR Á TEXTAN

Enrique Iglesias eða Enrique Miguel Iglesias y Preysler er fæddur í Madrid á Sáni þann 8.Mai 1975 og hefur unnið til Grammy verðlauna. Hann flutti til Miami átta ára gamall og býr þar núna en fór til Spánar á hverju sumri til móður sinnar en hann bjó hjá föður sínum í Miami og var að mestu leiti alinn upp af fóstrunni sinni. Hann byrjaði tónlistarferil sinn árið 1995 og spilar Pop í heimsgæðaflokki!

 

Enrique Iglesias

 

 

Takk fyrir mig og njótið lífsins til fulls! Vonandi hafa þessar upplýsingar komið að gagni! ;)

 

-Laddis;*


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Könnun
Ætti ég að byrja aftur?


Myndasögu síður!
Um Laddis og co.